Hvernig virkar
Frá bókun til sóknar
Þú velur búnaðinn og dagsetninguna. Við komum með hann heim að dyrum, tengjum bjórdæluna, reisum tjaldið ef þú vilt, og sækjum allt aftur eftir veisluna.

Ferlið
Sex skref, og við sjáum um þau flest
Svona gengur leigan fyrir sig, frá því að þú velur búnað þar til við sækjum hann aftur.
-
ÞúÞegar þér hentar
Veldu búnað og dagsetningar
Settu það sem þú þarft á bókunarlistann og veldu afhendingar- og skiladag. Verð leiguvara er á dag og heildin reiknast um leið.
-
ÞúÁ netinu
Bókaðu og greiddu á netinu
Bókunin tekur búnaðinn frá fyrir þína dagsetningu. Fyrirtæki sem vilja reikning á kennitölu senda okkur fyrirtækjabeiðni í stað netbókunar.
Viltu frekar fá tilboð fyrst? Sendu okkur línu og við setjum það saman með þér.
-
ViðInnan sólarhrings
Svar innan sólarhrings
Við höfum samband innan sólarhrings og staðfestum afhendingartíma. Um leið förum við yfir aðstæður á staðnum, til dæmis pláss fyrir tjald.
Ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu.
Afhendingartími staðfestur -
ViðAfhendingardagur
Við komum, tengjum og setjum upp
Við keyrum búnaðinn heim að dyrum á umsömdum tíma, kl. 8:30–17:00 alla daga. Bjórdælan er tengd á staðnum án kostnaðar. Ef þú bættir við uppsetningu reisum við tjaldið og tökum það niður aftur.
Tenging bjórdæluInnifalinUppsetning 5×8 m29.990 kr.Uppsetning 4×5 m24.990 kr. -
ÞúVeislan
Þú nýtur veislunnar
Búnaðurinn er klár og þú getur einbeitt þér að gestunum. Ef eitthvað bilar hringirðu strax í 778 8817 og við bætum úr eins fljótt og auðið er.
-
ViðEftir veislu eða næsta dag
Við sækjum
Við sækjum búnaðinn eftir viðburðinn eða næsta dag, eftir því sem um semst. Glösin fara óþvegin aftur í kassana. Uppvaskið er okkar.
Viltu frekar sjá um flutninginn? Þú getur líka sótt búnaðinn í Kríuhóla 2, 111 Reykjavík, og skilað honum þangað á umsömdum tíma.



Afhendingarsvæði
Frír flutningur til og frá á höfuðborgarsvæðinu
Við komum með búnaðinn og sækjum hann aftur án aukagjalds í öllum sjö sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.
Veislan er utan svæðis?
Við förum líka lengra gegn aukagjaldi. Segðu okkur hvert og hvenær og við finnum lausn.
Áður en við komum
Gátlisti fyrir afhendingardaginn
Fjögur atriði sem gera afhendinguna fljótlega og örugga. Hakaðu við eftir því sem þú gengur frá þeim.
Bókaðirðu barþjón? Hafðu drykki, klaka og aðgang að rennandi vatni tilbúið þegar hann mætir.
0 af 4 atriðum klár
Skil
Einföld skil, ekkert uppvask
Hafðu búnaðinn tilbúinn til sóknar á umsömdum tíma, í sama ástandi og þú tókst við honum.
-
Glösin óþvegin, aftur í kassana
Þú þarft ekki að vaska upp. Settu glösin aftur í kassana sem þau komu í og við sjáum um restina. Þrif á glösum eru innifalin.
-
Annar búnaður hreinn
Bjórdælur, borð, bekkir, útihitarar og kokteilasett eiga að fara til baka hrein og í sama ástandi og við afhendingu.
-
Tjöld þurr og án skreytinga
Fjarlægðu límband, skraut og aðrar festingar áður en við tökum tjaldið niður.
Óeðlilega óhreinn búnaður getur kallað á þrifgjald. Sjá þrifgjöld í leiguskilmálum.
Bókun og greiðsla
Hvernig bóka ég?
Veldu búnað, settu inn dagsetningu og kláraðu bókunina á netinu. Þú getur líka hringt í 778 8817 eða sent okkur tilboðsbeiðni og við klárum þetta með þér.
Hvenær greiði ég?
Þú bókar og greiðir á netinu. Bókunin tekur búnaðinn frá fyrir þína dagsetningu og enginn annar getur leigt hann á meðan. Ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu.
Getur fyrirtækið fengið reikning?
Já, en ekki í netbókuninni sjálfri. Sendu okkur fyrirtækjabeiðni eða tilboðsbeiðni með nafni og kennitölu fyrirtækisins og við gefum út reikning á kennitöluna. Nánar um fyrirtækjaviðburði.
Hvenær heyri ég frá ykkur eftir bókun?
Innan sólarhrings. Við förum persónulega yfir hverja bókun, höfum samband og staðfestum afhendingartíma. Ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu.
Get ég fengið tilboð áður en ég bóka?
Já. Segðu okkur frá veislunni, dagsetningu og gestafjölda í tilboðsforminu og við setjum saman tillögu að búnaði og verði.
Afhending og skil
Hvert sendið þið?
Flutningur til og frá er frír á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Álftanesi. Sendingar utan svæðis eru mögulegar gegn aukagjaldi. Hafðu samband og við finnum lausn.
Hvenær komið þið og hvenær sækið þið?
Við afhendum kl. 8:30–17:00 alla daga. Nákvæman tíma staðfestum við þegar við höfum samband eftir bókun. Við sækjum búnaðinn eftir viðburðinn eða næsta dag, eftir samkomulagi.
Hvað er leigutíminn langur?
Leigutími er einn sólarhringur (24 klst.) eða einn viðburður, eftir því sem um semst við bókun. Verð leiguvara er á dag. Fyrir helgarviðburði er afhending og sókn ákveðin eftir samkomulagi.
Þarf ég að vera á staðnum?
Já, þú eða einhver á þínum vegum þarf að vera á staðnum við afhendingu og þegar sótt er og tryggja greiðan aðgang. Ef enginn er á staðnum á umsömdum tíma getum við þurft að innheimta útkallsgjald, 14.900 kr. fyrir hverja aukaferð.
Get ég sótt búnaðinn til ykkar?
Já. Veldu „Ég sæki búnaðinn og skila honum" í bókunarlistanum. Þú sækir í Kríuhóla 2, 111 Reykjavík, og við finnum tíma með þér þegar við höfum samband eftir bókun. Flutningur til og frá er samt frí á höfuðborgarsvæðinu ef þú vilt frekar að við komum.
Búnaður og þrif
Er uppsetning innifalin?
Við tengjum bjórdælur á staðnum án kostnaðar. Uppsetning á veislutjöldum er valkvæð aukaþjónusta sem þú bætir við í bókuninni:
| Uppsetning og niðurtekt, 5×8 m tjald | 29.990 kr. |
| Uppsetning og niðurtekt, 4×5 m tjald | 24.990 kr. |
Ef uppsetning er valin reisum við tjaldið og tökum það niður eftir viðburðinn.
Þarf ég að þrífa glösin og búnaðinn?
Glösin þarftu ekki að vaska upp. Settu þau óþvegin aftur í kassana og við sjáum um þrifin.
Öðrum búnaði, svo sem bjórdælum, borðum, bekkjum og tjöldum, skal skila hreinum. Tjöldum skal skila þurrum og án límbands og skreytinga. Sé búnaði skilað óeðlilega óhreinum getur bæst við þrifgjald.
Hvað ef eitthvað bilar á meðan á veislunni stendur?
Hringdu strax í 778 8817. Við gerum við búnaðinn eða komum með annan sambærilegan eins fljótt og auðið er. Takist það ekki endurgreiðum við leiguverð þeirrar vöru.
Láttu okkur vita á meðan á viðburðinum stendur. Sé bilun fyrst tilkynnt eftir viðburð getur það haft áhrif á rétt til endurgreiðslu.
Hvað gerist ef eitthvað brotnar eða týnist?
Leigutaki greiðir fyrir búnað sem skemmist, brotnar eða týnist: viðgerðarkostnað, eða innkaupa- eða endurnýjunarvirði ef viðgerð er ekki möguleg. Eðlilegt slit telst ekki tjón.
Við yfirförum búnaðinn innan 3 virkra daga frá því að hann er sóttur og látum þig vita ef eitthvað kemur í ljós. Nánar í leiguskilmálum.
Útvegið þið drykkina?
Nei, þú leggur til drykkina og við sjáum um búnaðinn og þjónustuna. Ef þú bókar barþjón förum við yfir drykkjaseðilinn með þér og hjálpum þér að áætla magnið.
Hvað þarf ég að hafa tilbúið fyrir barþjóninn?
Þú leggur til drykki, klaka og aðgang að rennandi vatni, auk vinnuaðstöðu fyrir barinn. Barþjónninn setur upp barinn og gengur frá eftir sig. Lágmarksbókun er 2 klukkustundir. Nánar um barþjóna.
Veður, breytingar og afbókun
Hvað ef það verður hvasst eða vont veður?
Öryggi gesta gengur fyrir. Við reisum ekki tjald, og tökum það niður, ef vindur eða vindspá fer yfir 10 m/s í meðalvindi eða 15 m/s í hviðum. Eftir uppsetningu skal loka hliðum tjaldsins í vindi og hafa samband við okkur ef veður versnar.
Komi óveður eða önnur óviðráðanleg atvik í veg fyrir afhendingu eða uppsetningu býðst þér inneignarnóta eða færsla á nýjan dag, að frádregnum útlögðum kostnaði.
Heldur tjaldið rigningu?
Já. Dúkurinn er vatnsheldur og gefur gott skjól fyrir rigningu og vætu. Útihitari heldur hlýjunni inni þegar kvöldar. Gashitarar, grill og opinn eldur eru óheimil inni í tjaldinu.
Get ég breytt bókuninni eftir á?
Já, hafðu samband sem fyrst og við aðlögum bókunina eftir framboði. Sé viðburði frestað með að minnsta kosti 48 klst. fyrirvara má færa bókunina einu sinni á nýja dagsetningu án kostnaðar, ef búnaðurinn er laus þann dag.
Hvað ef ég þarf að afbóka?
Sendu afbókun skriflega á renteventiceland@gmail.com. Fyrirvarinn miðast við umsaminn afhendingartíma:
| 7 dagar eða meira | Full endurgreiðsla |
| Minna en 7 dagar, minnst 48 klst. | 50% eða inneign fyrir fullri upphæð |
| Minna en 48 klst. | Engin endurgreiðsla |
Byrjaðu að skipuleggja veisluna
Takmarkað magn af tjöldum og bjórdælum. Bókaðu tímanlega.