
Barþjónn
Reyndur barþjónn sem blandar, hellir og þjónar gestunum.
8.990 kr.á klst. á barþjón
Um þjónustuna
Barþjónarnir okkar hafa allir að minnsta kosti tveggja ára reynslu á bar og flestir hafa starfað sem yfirbarþjónar. Þeir mæta tímanlega, setja upp barinn, blanda kokteila og ganga frá eftir sig.
Við förum yfir drykkjaseðilinn með þér fyrir viðburðinn. Þú leggur til drykkina og við getum hjálpað þér að reikna út magnið.
Hvað er innifalið
Barþjónninn sér um
- Uppsetningu á barnum fyrir veisluna
- Að blanda, hella og þjóna gestunum
- Frágang á barnum að veislu lokinni
- Yfirferð á drykkjaseðli og magni með þér fyrir fram
Þú útvegar
- Drykkina
- Klaka
- Aðgang að vatni
- Borð eða aðstöðu fyrir barinn
Vantar glös eða kokteilasett? Það má leigja hjá okkur og það kemur með afhendingunni.
Barþjónarnir okkar að störfum
Svona gengur það fyrir sig
- Þú bókarVeldu dag, fjölda barþjóna og hve lengi barinn á að vera opinn.
- Við staðfestum og förum yfir seðilinnVið höfum samband innan sólarhrings, förum yfir drykkjaseðilinn og hjálpum þér að reikna magnið.
- Barþjónninn mætir tímanlegaHann setur upp barinn áður en gestirnir koma og sér um hann allt kvöldið.
- Gengið fráAð veislu lokinni gengur barþjónninn frá barnum eftir sig.
Upplýsingar
| Verð | 8.990 kr. á klukkustund á barþjón |
|---|---|
| Lágmark | 2 klukkustundir |
| Innifalið | Uppsetning og frágangur á bar |
| Framlenging | Reiknast á hverja byrjaða hálfa klst. |
| Þú útvegar | Drykki, klaka og aðgang að vatni |
| Svæði | Höfuðborgarsvæðið |
Barþjónar mega neita að afgreiða ölvaða og þá sem eru yngri en 20 ára.
Algengar spurningar
Hvað þarf ég að útvega?
Drykki, klaka og aðgang að vatni, auk borðs eða aðstöðu fyrir barinn. Glös og kokteilasett má leigja hjá okkur.
Getið þið hjálpað með drykkjaseðil og magn?
Já. Við förum yfir seðilinn með þér fyrir viðburðinn og hjálpum þér að reikna út hvað þarf mikið.
Hvað ef veislan dregst á langinn?
Það má framlengja. Framlenging reiknast á hverja byrjaða hálfa klukkustund.
Hve marga barþjóna þarf ég?
Gott viðmið er einn barþjónn á hverja 35 gesti. Ef mikið álag er í byrjun veislu getur borgað sig að hafa fleiri.
Hvað ef barþjónninn forfallast?
Þá sendum við staðgengil. Ef það tekst ekki færðu fulla endurgreiðslu.
Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.
Umsagnir á Google
Það sem viðskiptavinir segja
„Strákarnir frá RentEvent stóðu sig frábærlega á barnum í veislu sem við hjónin vorum að halda. Þetta var breytt aldursbil gesta í veislunni en allir töluðu um hvað barþjónarnir voru flottir og kurteisir. Við gefum þeim 100% meðmæli.“
„Pantaðu hjá þeim 1 barþjón og nokkur vín glös og kokteila glös. Geggjuð þjónusta frábær barþjónn líka sem kunni að gera alla kokteila sem við vildum.“
„Fékk barþjón og glös. Snilldargæjar, komu að öllu skipulaginu og mjög þægilegir i samskiptum!“
Passar vel með
Allur búnaðurinn

