Veisluleiga á höfuðborgarsvæðinu
Allt fyrir veisluna. Við komum með það.
Veislutjöld, borð, bekkir, bjórdælur, glös og barþjónar. Við keyrum búnaðinn til þín og sækjum eftir veisluna. Tengjum bjórdæluna og reisum tjaldið ef þú vilt.
Veldu afhendingar- og skiladag. Dagsetningin fylgir þér um vefinn.


Dæmi um afhendingu
- Frí heimsending og sóknUm allt höfuðborgarsvæðið
- Við tengjum bjórdælunaÁn kostnaðar. Uppsetning tjalda í boði
- Svar innan sólarhringsFull endurgreiðsla ef eitthvað er ekki laust
- Reikningur fyrir fyrirtækiSendu fyrirtækjabeiðni
Vinsælast
Vinsælasti búnaðurinn
Við eigum eitt 5×8 m tjald og tvær bjórdælur. Bókaðu tímanlega ef dagsetningin skiptir máli.
Búnaður til leigu
Hvað vantar í veisluna?

Tjöld og hiti
Skjól og hlýja fyrir veislu undir berum himni.
Veislutjöld frá 34.990 kr./dagÚtihitari 4.990 kr./dag

Borð og bekkir
Sæti fyrir 6–8 gesti í hverju setti.
Settið 9.990 kr./dag

Bar og bjór
Bjórdæla, kokteilasett og allt fyrir barinn.
Bjórdæla 14.990 kr./dagKokteilasett 2.990 kr./dag

Glös
Bjór-, vín- og kokteilaglös. Þú þarft ekki að vaska upp.
Glös frá 190 kr./stk á dag

Barþjónn
Reyndur barþjónn sem sér um barinn allt kvöldið.
Barþjónn 8.990 kr./klst.

Til sölu
Síróp, puré og einnota glös sem þú átt eftir veisluna.
Síróp frá 3.290 kr.
Svona virkar þetta
Bókað á fjórum skrefum
- Á vefnum
Veldu búnað og dagsetningar
Settu það sem þú þarft á bókunarlistann og veldu afhendingar- og skiladag.
- Strax
Bókaðu og greiddu á netinu
Bókunin tekur búnaðinn frá fyrir þína dagsetningu.
- Innan sólarhrings
Við höfum samband
Við staðfestum afhendingartíma. Ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu.
- Veisludagurinn
Við komum og sækjum
Við komum með búnaðinn og sækjum hann eftir veisluna. Einnig er hægt að sækja og skila í Kríuhóla 2.
Fyrirtæki sem vilja greiða gegn reikningi senda fyrirtækjabeiðni í stað netbókunar.
Barþjónusta
Þú nýtur kvöldsins. Barþjónninn sér um barinn.
Barþjónarnir okkar setja upp barinn, blanda og hella allt kvöldið og ganga frá í lokin. Þú leggur til drykki, klaka og vatn.
- Allir með minnst tveggja ára reynslu
- Flestir hafa starfað sem yfirbarþjónar
- Glös og kokteilasett leigir þú hjá okkur í sömu ferð






Myndir úr veislum sem við höfum þjónustað
Úr garði í veislu
Þú býður gestunum. Við komum með búnaðinn.
Hugmynd að uppsetningu
Gestareiknir
Hvað þarf ég mikið?
Segðu okkur hve margir koma, hvort veislan er inni eða úti og hvort gestir sitja eða standa. Þú sérð strax tillögu með verði á dag.
Nákvæmari reiknir eftir tegund veisluUmsagnir
Það sem viðskiptavinir segja
„Mættu og settu upp tjald, hitara og borð fyrir garðveislu. Allt uppá tíu - flott þjónusta á góðu verði!“
„Leigði hitara og tjald með uppsetningu. Allt stóðst og þjónustan var góð. Myndi klárlega leigja aftur.“
„Mjög góð þjónusta. Ekkert vesen - komu með hlutina og sóttu aftur. Mæli hiklaust með að panta hjá þeim.“
„Geggjuð þjónusta og fullkomið fyrir veisluna!“
Næsta veisla
Segðu okkur hvenær. Við sjáum um búnaðinn.
Veldu búnaðinn á vefnum eða sendu okkur línu og við setjum saman tillögu. Svar innan sólarhrings.
Eða hringdu í 778 8817
Tjaldið okkar · kvöldlýsing er hugmynd