Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu Svar innan sólarhrings 778 8817

Skilmálar

Leiguskilmálar

Leiguskilmálar RentEvent ehf.: afbókanir, ábyrgð leigutaka, tjón, afhending og skil.

Gilda frá 6. október 2026RentEvent ehf. · kt. 500226-0640

Þú bókar og greiðir á netinu og bókunin tekur búnað og starfsfólk frá fyrir þína dagsetningu, svo við getum ekki leigt það öðrum á meðan. Við höfum samband innan sólarhrings og staðfestum afhendingartíma. Ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu. Skilmálar þessir gilda um alla leigu á búnaði, veislutjöld og barþjónustu, til viðbótar almennum viðskiptaskilmálum RentEvent.

Í stuttu máli

Samantekt til hægðarauka. Skilmálarnir í heild eru hér fyrir neðan og gilda.

Afbókun

Full endurgreiðsla með 7 daga fyrirvara

Minna en 7 dagar en minnst 48 klst.: 50% eða inneign fyrir fullri upphæð. Innan 48 klst.: engin endurgreiðsla.

Nánar
Ábyrgð á búnaði

Frá afhendingu til yfirferðar

Þú berð ábyrgð á búnaðinum þar til við höfum sótt hann og yfirfarið. Tjón og týndur búnaður greiðist, eðlilegt slit ekki.

Nánar
Þrif

Glösin óþvegin, annað hreint

Þrif á glösum eru innifalin. Öðrum búnaði er skilað hreinum og tjöldum þurrum. Annars getur bæst við þrifgjald.

Þrifgjöld
Vindmörk tjalda

10 m/s meðalvindur, 15 m/s í hviðum

Fari vindur eða vindspá yfir þessi mörk getum við neitað uppsetningu eða tekið tjaldið niður.

Nánar

1Afbókanir og endurgreiðslur

Afbókun skal send skriflega á renteventiceland@gmail.com. Fyrirvarinn miðast við umsaminn afhendingartíma.

Fyrirvari og endurgreiðsla

FyrirvariEndurgreiðsla
7 dagar eða meiraFull endurgreiðsla
Minna en 7 dagar en að minnsta kosti 48 klst.50% endurgreiðsla, eða inneignarnóta fyrir fullri upphæð
Minna en 48 klst.Engin endurgreiðsla

Enginn 14 daga skilaréttur

Leiga á búnaði og þjónusta sem bókuð er á tiltekna dagsetningu er undanþegin almennum 14 daga rétti til að falla frá samningi samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga. Í staðinn gilda reglurnar hér að ofan.

Hluti pöntunar

Sömu reglur gilda ef hluti pöntunar er afbókaður, til dæmis ef búnaði er fækkað.

Frestun

Sé viðburði frestað með að minnsta kosti 48 klst. fyrirvara má færa bókunina einu sinni á nýja dagsetningu án kostnaðar, ef búnaður er laus þann dag. Annars gilda afbókunarreglurnar.

Inneignarnóta

Inneignarnóta gildir í 24 mánuði frá útgáfu og má nota upp í hvaða leigu eða þjónustu sem er hjá RentEvent.

Framkvæmd

Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, innan 14 daga frá því að afbókun var samþykkt. Hafi reikningur verið gefinn út er kreditreikningur gefinn út á móti.

Afbókun af hálfu RentEvent

Geti RentEvent ekki afhent pantaðan búnað eða þjónustu af ástæðum sem varða RentEvent fær leigutaki fulla endurgreiðslu fyrir það sem ekki var afhent.

2Ábyrgð á búnaði og tjón

Leigutaki ber fulla ábyrgð á búnaðinum frá afhendingu og þar til RentEvent hefur sótt hann og yfirfarið. RentEvent hefur allt að 3 virka daga frá því að búnaður er sóttur til að yfirfara hann og tilkynna leigutaka um tjón.

Leigutaki skal fara vel með búnaðinn, nota hann eingöngu á þann hátt sem honum er ætlað og fylgja leiðbeiningum RentEvent. Óheimilt er að framleigja búnað, lána hann öðrum eða flytja hann af afhendingarstað án samþykkis RentEvent.

Tjón og týndur búnaður

Leigutaki greiðir fyrir búnað sem skemmist, brotnar eða týnist. Greiddur er viðgerðarkostnaður eða, sé viðgerð ekki möguleg, innkaupa- eða endurnýjunarvirði búnaðarins.

Eðlilegt slit

Leigutaki ber ekki ábyrgð á eðlilegu sliti sem fylgir venjulegri notkun, né á göllum sem voru á búnaði við afhendingu. Brot, rifur, brunagöt, beyglur og búnaður sem vantar teljast tjón.

Bilun á meðan á viðburði stendur

Bili búnaður skal leigutaki tilkynna það strax í síma 778 8817 svo RentEvent geti bætt úr. RentEvent gerir við búnaðinn eða útvegar annan sambærilegan eins fljótt og auðið er. Takist það ekki er leiguverð þeirrar vöru endurgreitt. Endurgreiðsla á ekki við ef bilun stafar af rangri notkun, og sé bilun ekki tilkynnt fyrr en eftir viðburð getur það haft áhrif á rétt til endurgreiðslu.

Seinkun á skilum

Dragist skil fram yfir umsaminn tíma reiknast aukaleiga fyrir hvern byrjaðan dag.

3Þrif, afhending og skil

Glös

Glös þarf ekki að vaska upp. Þrif á glösum eru innifalin í verði.

Annar búnaður

Öðrum búnaði, svo sem bjórdælum, borðum, bekkjum og tjöldum, skal skilað hreinum og í sama ástandi og tekið var við honum.

Tjöld

Tjöldum skal skilað þurrum og án límbands, skreytinga og annarra festinga.

Þrifgjald

Sé búnaði skilað óeðlilega óhreinum áskilur RentEvent sér rétt til að innheimta þrifgjald samkvæmt töflunni hér að neðan.

Leigutími

Leigutími er einn sólarhringur (24 klst.) eða einn viðburður, eftir því sem um semst við bókun.

Afhending og skil

RentEvent afhendir og sækir búnað á umsömdum tíma. Leigutaki, eða fulltrúi hans, skal vera á staðnum og tryggja greiðan aðgang.

Útkallsgjald

Sé enginn á staðnum til að taka á móti eða afhenda búnað á umsömdum tíma áskilur RentEvent sér rétt til að innheimta útkallsgjald, 14.900 kr., fyrir hverja aukaferð.

Þrifgjöld

BúnaðurÞrifgjald
Veislutjald 5×8 m14.990 kr.
Veislutjald 4×5 m9.990 kr.
Bjórdæla4.990 kr.
Borð og bekkir (hvert sett)1.990 kr.
Útihitari1.990 kr.
Kokteilasett990 kr.
GlösInnifalið í leigu

4Veislutjöld, veður og óviðráðanleg atvik

Pláss og undirlag

Leigutaki ber ábyrgð á að nægilegt pláss og slétt, traust undirlag sé á staðnum, og staðfestir það við bókun. Veislutjald 5×8 m þarf slétt svæði sem er að minnsta kosti 6×9 m og veislutjald 4×5 m að minnsta kosti 5×6 m. Lofthæð þarf að vera að minnsta kosti 3 m.

Ekki hægt að reisa tjald vegna aðstæðna á staðnum

Sé ekki hægt að reisa tjald vegna plássleysis, undirlags eða aðgengis er hvorki leiga né uppsetningargjald endurgreitt. Það sama gildir um búnað sem pantaður var til notkunar í tjaldinu.

Vindmörk og öryggi

RentEvent áskilur sér rétt til að neita uppsetningu eða taka tjald niður ef vindspá eða vindur fer yfir öryggismörk tjaldsins, 10 m/s í meðalvindi eða 15 m/s í hviðum, eða ef aðstæður eru að öðru leyti óöruggar. Öryggi gesta og starfsfólks gengur ávallt fyrir.

Óveður og óviðráðanleg atvik (force majeure)

Komi óveður, lokaðir vegir, náttúruhamfarir, fyrirmæli stjórnvalda eða önnur óviðráðanleg atvik í veg fyrir afhendingu eða uppsetningu býðst leigutaka inneignarnóta eða færsla á nýjan dag, að frádregnum útlögðum kostnaði RentEvent. Hvorugur aðili ber skaðabótaábyrgð gagnvart hinum vegna slíkra atvika.

Ábyrgð eftir uppsetningu

Leigutaki ber ábyrgð á tjaldinu eftir að það hefur verið reist. Í vindi skal loka hliðum tjaldsins. Óheimilt er að fjarlægja eða færa festingar, hæla eða lóð. Versni veður skal leigutaki hafa samband við RentEvent án tafar.

Eldur og hitarar

Opinn eldur, grill og gashitarar eru óheimil inni í tjöldum.

5Barþjónusta

Tímagjald

Tímagjald og lágmarkstími gilda samkvæmt bókun.

Framlenging og yfirvinna

Vinna fram yfir umsaminn tíma er háð samþykki barþjóns á staðnum og reiknast fyrir hverja byrjaða hálfa klukkustund á gildandi tímagjaldi.

Forföll

Forfallist barþjónn reynir RentEvent að útvega staðgengil. Takist það ekki er þjónustan endurgreidd að fullu og takmarkast ábyrgð RentEvent við þá upphæð.

Áfengi og leyfi

Leigutaki leggur til alla drykki og ber ábyrgð á öllum leyfum sem viðburðurinn kann að krefjast. RentEvent selur ekki áfengi.

Réttur til að neita afgreiðslu

Barþjónar áskilja sér rétt til að neita að afgreiða ölvaða einstaklinga og þá sem eru yngri en 20 ára, og geta óskað eftir skilríkjum.

Aðstaða

Gestgjafi útvegar viðunandi vinnuaðstöðu, klaka og aðgang að rennandi vatni.

Vinnuumhverfi

Barþjónn má hætta störfum án endurgreiðslu verði hann fyrir ógnun, áreitni eða ofbeldi.

6Seldar vörur

Neytendur geta fallið frá kaupum á seldum vörum, svo sem sírópi og einnota glösum, innan 14 daga frá afhendingu og fengið endurgreitt, enda sé varan ónotuð og í órofnum umbúðum.

Rétturinn á ekki við um matvæli og aðrar innsiglaðar vörur eftir að innsigli hefur verið rofið.

Um galla á seldum vörum fer samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.

7Ágreiningur

Komi upp ágreiningur um afgreiðslu máls biðjum við þig að hafa samband á renteventiceland@gmail.com og við svörum innan 5 virkra daga. Náist ekki samkomulag geta neytendur skotið málinu til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (www.kvth.is). Að öðru leyti gilda ákvæði almennra viðskiptaskilmála RentEvent um lög og varnarþing.

Ertu með spurningu?

Hringdu eða sendu okkur línu. Við svörum innan sólarhrings.