Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu Svar innan sólarhrings 778 8817
Barþjónn
Barþjónn

Barþjónn

Reyndur barþjónn sem blandar, hellir og þjónar gestunum.

Lágmark 2 klst.

8.990 kr.á klst. á barþjón

Dagsetning viðburðar Barþjónninn er verðlagður á klukkustund. Dagsetningin segir okkur hvenær veislan er.
Samtals m. VSK8.990 kr.
  • Barþjónninn kemur á staðinn á höfuðborgarsvæðinu
  • Þú bókar og greiðir á netinu. Svar innan sólarhrings, og ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu

Um þjónustuna

Barþjónarnir okkar hafa allir að minnsta kosti tveggja ára reynslu á bar og flestir hafa starfað sem yfirbarþjónar. Þeir mæta tímanlega, setja upp barinn, blanda kokteila og ganga frá eftir sig.

Við förum yfir drykkjaseðilinn með þér fyrir viðburðinn. Þú leggur til drykkina og við getum hjálpað þér að reikna út magnið.

Hvað er innifalið

Barþjónninn sér um

  • Uppsetningu á barnum fyrir veisluna
  • Að blanda, hella og þjóna gestunum
  • Frágang á barnum að veislu lokinni
  • Yfirferð á drykkjaseðli og magni með þér fyrir fram

Þú útvegar

  • Drykkina
  • Klaka
  • Aðgang að vatni
  • Borð eða aðstöðu fyrir barinn

Vantar glös eða kokteilasett? Það má leigja hjá okkur og það kemur með afhendingunni.

Barþjónarnir okkar að störfum

Barþjónn frá RentEvent við kokteilabar í heimaveislu Barþjónn frá RentEvent blandar kokteila Brosandi barþjónn frá RentEvent Glös tilbúin á barborði fyrir veislu

Svona gengur það fyrir sig

  1. Þú bókarVeldu dag, fjölda barþjóna og hve lengi barinn á að vera opinn.
  2. Við staðfestum og förum yfir seðilinnVið höfum samband innan sólarhrings, förum yfir drykkjaseðilinn og hjálpum þér að reikna magnið.
  3. Barþjónninn mætir tímanlegaHann setur upp barinn áður en gestirnir koma og sér um hann allt kvöldið.
  4. Gengið fráAð veislu lokinni gengur barþjónninn frá barnum eftir sig.

Upplýsingar

Verð8.990 kr. á klukkustund á barþjón
Lágmark2 klukkustundir
InnifaliðUppsetning og frágangur á bar
FramlengingReiknast á hverja byrjaða hálfa klst.
Þú útvegarDrykki, klaka og aðgang að vatni
SvæðiHöfuðborgarsvæðið

Barþjónar mega neita að afgreiða ölvaða og þá sem eru yngri en 20 ára.

Algengar spurningar

Hvað þarf ég að útvega?

Drykki, klaka og aðgang að vatni, auk borðs eða aðstöðu fyrir barinn. Glös og kokteilasett má leigja hjá okkur.

Getið þið hjálpað með drykkjaseðil og magn?

Já. Við förum yfir seðilinn með þér fyrir viðburðinn og hjálpum þér að reikna út hvað þarf mikið.

Hvað ef veislan dregst á langinn?

Það má framlengja. Framlenging reiknast á hverja byrjaða hálfa klukkustund.

Hve marga barþjóna þarf ég?

Gott viðmið er einn barþjónn á hverja 35 gesti. Ef mikið álag er í byrjun veislu getur borgað sig að hafa fleiri.

Hvað ef barþjónninn forfallast?

Þá sendum við staðgengil. Ef það tekst ekki færðu fulla endurgreiðslu.

Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.

Umsagnir á Google

Það sem viðskiptavinir segja

4,9 af 5 · 31 umsögn Lesa allar umsagnir á Google
★★★★★
„Strákarnir frá RentEvent stóðu sig frábærlega á barnum í veislu sem við hjónin vorum að halda. Þetta var breytt aldursbil gesta í veislunni en allir töluðu um hvað barþjónarnir voru flottir og kurteisir. Við gefum þeim 100% meðmæli.“
Guðrún GunnlaugsdóttirGoogle-umsögn
★★★★★
„Pantaðu hjá þeim 1 barþjón og nokkur vín glös og kokteila glös. Geggjuð þjónusta frábær barþjónn líka sem kunni að gera alla kokteila sem við vildum.“
Laufey LyngdalGoogle-umsögn
★★★★★
„Fékk barþjón og glös. Snilldargæjar, komu að öllu skipulaginu og mjög þægilegir i samskiptum!“
Johannes GeirdalGoogle-umsögn
Allur búnaðurinn
Kokteilaglas

Kokteilaglas

27 cl skál á fæti fyrir Daiquiri og Cosmopolitan.

249 kr. á glas · dag
Kokteilasett

Kokteilasett

Hristari, mælir, sigti og barskeið í einu setti.

2.990 kr. á dag
Lowball-glas

Lowball-glas

33 cl þykkt glas fyrir Negroni og Sours.

190 kr. á glas · dag