Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu Svar innan sólarhrings 778 8817

Um okkur

Við keyrum búnaðinn út sjálfir

RentEvent ehf. er ungt fyrirtæki, stofnað árið 2026. Eigendurnir taka sjálfir við bókunum, keyra búnaðinn heim til þín, tengja hann og sækja hann aftur eftir veisluna.

Barþjónn í svartri RentEvent-skyrtu hellir í glas
Barþjónn frá RentEvent
Hvítt 5×8 m veislutjald frá RentEvent reist á grasflöt undir fjalli
Veislutjald 5×8 m
Starfsmaður RentEvent hellir úr bjórdælunni í glas
Bjórdælan okkar

Hugmyndin

Veislan á að snúast um gestina

Það á að vera auðvelt að leigja það sem veislan þarf, og fá það afhent af fólki sem mætir á réttum tíma og veit hvað það er að gera.

Þess vegna gerum við þetta sjálfir. Sama fólkið svarar fyrirspurninni, hefur samband eftir bókun, keyrir búnaðinn út og setur hann upp. Ef eitthvað kemur upp á veistu við hvern þú talar.

Við leigjum veislutjöld, borð og bekki, bjórdælur, glös og kokteilasett, og útvegum reynda barþjóna. Flutningur til og frá er ókeypis á öllu höfuðborgarsvæðinu.

MikaelEigandi
EmilEigandi
ÓliverEigandi

Við skiptum með okkur afhendingum, uppsetningum og sóknum, svo það er yfirleitt einn okkar sem bankar upp á hjá þér.

Barþjónn frá RentEvent stendur við uppsettan kokteilbar með glösum og skrauti

Barþjónarnir

Fólk sem kann á bar

Við ráðum aðeins barþjóna sem hafa staðið vaktina áður. Þeir mæta tímanlega, setja upp barinn og ganga frá eftir sig.

2+ árreynsla á bar, að lágmarki
Flestirhafa verið yfirbarþjónar
  • Fara yfir drykkjaseðilinn með þér fyrir viðburðinn og hjálpa þér að reikna út magnið.
  • Blanda kokteila, hella og halda barnum hreinum allt kvöldið.
  • Afgreiða af ábyrgð: þeir mega neita ölvuðum og yngri en 20 ára um afgreiðslu.
Bóka barþjón

Það sem við lofum

Fjögur loforð sem við getum alltaf staðið við

  • Við mætum á réttum tímaVið staðfestum afhendingartímann með þér fyrir viðburðinn og stöndum við hann. Búnaðurinn er tilbúinn til notkunar þegar við förum.
  • Svar innan sólarhringsEftir hverja bókun höfum við persónulega samband innan 24 klukkustunda og staðfestum afhendingartíma. Ekki sjálfvirkan póst og þögn. Ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu.
  • Hrein glös, ekkert uppvaskGlösin koma hrein og þú skilar þeim óþvegnum. Uppvaskið er innifalið í verðinu.
  • Heiðarleg verðVerðin á vefnum eru verðin sem þú greiðir. Flutningur til og frá og tenging bjórdælu kosta ekkert aukalega á höfuðborgarsvæðinu. Það sem getur bæst við sérðu á miðanum.
Það sem getur bæst við

Ekkert af þessu leggst á venjulega bókun. Það er hér svo þú vitir af því fyrirfram.

Þrifgjald, ef búnaði er skilað óeðlilega óhreinum990–14.990 kr.
Útkallsgjald, ef enginn er á staðnum á umsömdum tíma14.900 kr.
Akstur utan höfuðborgarsvæðisEftir samkomulagi
Uppvask á glösum0 kr.
Flutningur til og frá0 kr.
Tenging bjórdælu0 kr.

Þrifgjöld fyrir hverja vöru og öll skilyrði í leiguskilmálum

Hafðu samband við okkur beint

Netfang
renteventiceland@gmail.com
Fyrirtæki
RentEvent ehf. · kt. 500226-0640