Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu Svar innan sólarhrings 778 8817
Bar og bjór

Bjórdæla

Kældur bjór beint úr kút. Innbyggð loftdæla, ekkert CO₂-hylki.

Við tengjum hana

14.990 kr.á dag

Takmarkaður fjöldi dæla. Bókaðu tímanlega.

Dagsetningar veislunnar Veldu afhendingardag og skiladag. Gjaldfærðir leigudagar eru skiladagur mínus afhendingardagur: afhent fös og sótt sun = 2 dagar.
Samtals m. VSK14.990 kr.

Mögulegt aukagjald: þrifgjald 4.990 kr. ef skilað óhreinu · útkallsgjald 14.900 kr. ef enginn er á staðnum

  • Frír flutningur til og frá á höfuðborgarsvæðinu, kl. 8:30–17:00
  • Þú bókar og greiðir á netinu. Svar innan sólarhrings, og ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu
  • Við tengjum dæluna á staðnum án kostnaðar

Um vöruna

Lindr PYGMY er nett borðdæla sem kælir bjórinn jafnóðum og hann rennur í gegn. Þetta er svokölluð þurrkæling: kæliþjappa kælir blokk sem bjórslangan liggur í gegnum, svo hvorki þarf ís né vatn. Dælan er tilbúin að hella nokkrum mínútum eftir að henni er stungið í samband.

Innbyggð loftdæla þrýstir á kútinn, svo þú þarft ekkert CO₂-hylki. Dælan gengur fyrir venjulegri innstungu.

Við tengjum dæluna á staðnum þér að kostnaðarlausu. Þú leggur til kútinn. Láttu okkur vita hvaða kút þú ætlar að nota þegar þú bókar, svo við getum staðfest að tengið passi.

Upplýsingar

GerðLindr PYGMY borðdæla, einn krani
ÞrýstingurInnbyggð loftdæla, ekkert CO₂ eða gas
KælingÞurrkæling með kæliþjöppu, tilbúin eftir nokkrar mínútur
Afköst20–35 lítrar á klukkustund, eftir gerð
RafmagnVenjuleg 230 V innstunga, um 320–350 W
Stærð og þyngdUm 18 × 31 × 34 cm, 16,5–19 kg
KúturEkki innifalinn. Við staðfestum tengið við bókun

Bjórinn verður kaldastur ef kúturinn er geymdur á svölum stað fram að veislunni.

Loftdælan þrýstir á kútinn með venjulegu lofti, svo bjórinn í honum geymist best ef hann klárast innan tveggja sólarhringa frá tengingu.

Þrifgjald 4.990 kr. ef dælunni er skilað óhreinu.

Algengar spurningar

Þarf ég CO₂ eða gas?

Nei. Innbyggð loftdæla þrýstir á kútinn, svo þú þarft ekkert CO₂-hylki. Dælan þarf bara venjulega innstungu.

Hvaða kútar passa?

Þú leggur til kútinn. Kútar eru með mismunandi tengjum, svo láttu okkur vita hvaða kút þú ætlar að nota þegar þú bókar og við staðfestum að hann passi.

Hvað þarf mikið rafmagn?

Venjulega 230 V innstungu. Dælan tekur um 320–350 W. Hún kælir bjórinn jafnóðum og er tilbúin að hella nokkrum mínútum eftir að henni er stungið í samband.

Hver tengir dæluna?

Við tengjum hana á staðnum þér að kostnaðarlausu.

Hve mikið afgreiðir hún?

Um 20–35 lítra á klukkustund, eftir gerð. Ef þú átt von á mörgum gestum geturðu leigt tvær dælur.

Get ég afbókað?

Já. Með 7 daga fyrirvara eða meira færðu fulla endurgreiðslu. Með 2–6 daga fyrirvara færðu 50% endurgreiðslu eða fulla inneign. Innan 48 klst. fyrir viðburð er ekki endurgreitt.

Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.

Umsagnir á Google

Það sem viðskiptavinir segja

4,9 af 5 · 31 umsögn Lesa allar umsagnir á Google
★★★★★
„Snögg og góð þjónusta. Fékk bjórdælu með stuttum fyrirvara. Þeir komu með dæluna og settu upp. Sóttu hana síðar á umsömdum tíma. Engin fyrirhöfn að "sækja og skila" sem var snilldin ein.. og ekkert vesen á dælu. Mæli klárlega með“
Elva AdGoogle-umsögn
★★★★★
„Fékk barþjónn og bjórdælu þetta eru algjörir snillingar🤩🤩🤩“
Kristófer Snær KaldalGoogle-umsögn
★★★★★
„Mjög góð þjónusta. Ekkert vesen komu með hlutina og sóttu. Mjög ánægð og mæli með að panta hjá þeim“
Alda SvansdóttirGoogle-umsögn
Allur búnaðurinn
Bjórglas

Bjórglas

38 cl á fæti. Heldur froðunni lengur.

190 kr. á glas · dag
Borð og bekkir

Borð og bekkir

Eitt borð og tveir bekkir. Sæti fyrir 6–8 gesti.

9.990 kr. á dag