
Veislutjald 4×5 m
20 m²: um 15 sitjandi eða allt að 30 standandi. Hentar vel í garðinn.
34.990 kr.á dag
Um vöruna
Nett tjald fyrir fermingar, afmæli og fjölskyldusamkomur í garðinum. Bjart og hvítt, með gluggaspjöldum og tveimur hurðum.
Sterk stálgrind og vatnsheldur dúkur veita skjól fyrir rigningu og vætu. Bættu við uppsetningu og við sjáum um að reisa og taka niður.
Upplýsingar
| Stærð | 4 × 5 m (20 m²) |
|---|---|
| Hæð | 2,8 m |
| Rúmar | Um 15 sitjandi við borð eða allt að 30 standandi |
| Svæði sem þarf | Slétt, minnst 5 × 6 m |
| Lofthæð | Minnst 3 m, án greina og þakrenna |
| Dúkur | Vatnsheldur, hvítur |
| Grind | Galvanhúðað stál |
| Hurðir | 2, auk gluggaspjalda |
Tjaldið er ekki reist, eða er tekið niður, ef vindur fer yfir 10 m/s í meðalvindi eða 15 m/s í hviðum.
Mældu svæðið áður en þú bókar. Ef ekki er hægt að reisa tjaldið vegna pláss eða undirlags er leigan ekki endurgreidd.
Þrifgjald 9.990 kr. ef tjaldinu er skilað óhreinu.
Algengar spurningar
Hvað þarf mikið pláss?
Tjaldið þarf slétt svæði, minnst 5 × 6 m, og minnst 3 m lofthæð án greina, þakrenna eða lína. Mældu svæðið áður en þú bókar. Ef ekki er hægt að reisa tjaldið vegna pláss eða undirlags er leigan ekki endurgreidd.
Hvaða undirlag hentar?
Slétt og fast undirlag, til dæmis gras, pallur eða hellur. Ef þú ert óviss, sendu okkur mynd af svæðinu og við metum það með þér.
Hvað ef það verður hvasst?
Af öryggisástæðum er tjaldið ekki reist, eða það tekið niður, ef meðalvindur fer yfir 10 m/s eða hviður yfir 15 m/s. Ef spáin er tvísýn, hafðu samband og við förum yfir stöðuna saman.
Þarf ég að kaupa uppsetningu?
Nei, uppsetning er valkvæð aukaþjónusta. Ef þú vilt að við sjáum um það bætirðu við uppsetningu og niðurtekt fyrir 24.990 kr. Þá reisum við tjaldið fyrir veisluna og tökum það niður á eftir.
Get ég afbókað?
Já. Með 7 daga fyrirvara eða meira færðu fulla endurgreiðslu. Með 2–6 daga fyrirvara færðu 50% endurgreiðslu eða fulla inneign. Innan 48 klst. fyrir viðburð er ekki endurgreitt.
Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.
Umsagnir á Google
Það sem viðskiptavinir segja
„Mættu og settu upp tjald, hitara og borð fyrir garðveislu. Allt uppá tíu - flott þjónusta á góðu verði!“
„Leigði hitara og tjald með uppsetningu. Allt stóðst. Góð þjónusta. Myndi leigja aftur frá þeim“
„Mjög góð þjónusta. Ekkert vesen komu með hlutina og sóttu. Mjög ánægð og mæli með að panta hjá þeim“

