
Veislutjald 5×8 m
40 m² tjald fyrir 45–60 gesti. Gluggaspjöld og tvær hurðir.
2000 W rafmagnshitari á fæti með þremur hitastillingum.
4.990 kr.á dag
Heldur gestunum heitum á pallinum, í tjaldinu eða á útisvæðinu þegar kvöldar. Gengur fyrir rafmagni, svo hann má nota í tjaldi þar sem gashitarar eru bannaðir.
Veðurvörn IPX4 þolir úða og raka. Stöðugur fótur og einföld uppsetning: stingdu í samband og veldu hita.
| Afl | 2000 W |
|---|---|
| Orkugjafi | Rafmagn, venjuleg innstunga |
| Stillingar | 3 hitastillingar |
| Vörn | IPX4, þolir vatnsúða |
| Hentar | Pallar, tjöld og útisvæði |
Þrifgjald 1.990 kr. ef búnaðinum er skilað óhreinu.
Nei, venjuleg innstunga dugar. Hann tekur 2000 W, svo best er að hafa ekki önnur aflmikil tæki á sömu grein.
Já. Hann gengur fyrir rafmagni og hentar því í tjöld þar sem gashitarar eiga ekki heima. Hafðu gott bil á milli hitarans og tjalddúksins.
Gott viðmið er einn hitari á hverja 20 m²: einn í 4×5 m tjaldið og tvo í 5×8 m tjaldið.
Já. Með 7 daga fyrirvara eða meira færðu fulla endurgreiðslu. Með 2–6 daga fyrirvara færðu 50% endurgreiðslu eða fulla inneign. Innan 48 klst. fyrir viðburð er ekki endurgreitt.
Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.
Umsagnir á Google
„Mættu og settu upp tjald, hitara og borð fyrir garðveislu. Allt uppá tíu - flott þjónusta á góðu verði!“
„Leigði hitara og tjald með uppsetningu. Allt stóðst. Góð þjónusta. Myndi leigja aftur frá þeim“
„Frábær þjónusta. Leigði hitalampa og átti ekki von á að fá heimsendingarþjónustu. Allt stóðst upp á punkt og prik 👍“

40 m² tjald fyrir 45–60 gesti. Gluggaspjöld og tvær hurðir.


Vafrakökur
Nauðsynlegar kökur halda utan um bókunarlistann. Með þínu leyfi notum við líka kökur frá Google og Meta til að mæla umferð og bæta auglýsingar. Persónuverndarstefna