Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu Svar innan sólarhrings 778 8817
Hugmynd að uppsetningu
Tjöld og hiti

Veislutjald 5×8 m

40 m²: um 30 sitjandi eða 45–60 standandi. Gluggaspjöld og tvær hurðir.

Um 30 sitjandi · 45–60 standandi Vinsælast

49.990 kr.á dag

Aðeins eitt tjald af þessari stærð. Bókaðu tímanlega.

Dagsetningar veislunnar Veldu afhendingardag og skiladag. Gjaldfærðir leigudagar eru skiladagur mínus afhendingardagur: afhent fös og sótt sun = 2 dagar.
Samtals m. VSK49.990 kr.

Mögulegt aukagjald: þrifgjald 14.990 kr. ef skilað óhreinu · útkallsgjald 14.900 kr. ef enginn er á staðnum

  • Frír flutningur til og frá á höfuðborgarsvæðinu, kl. 8:30–17:00
  • Þú bókar og greiðir á netinu. Svar innan sólarhrings, og ef eitthvað reynist ekki laust færðu fulla endurgreiðslu

Um vöruna

Rúmgott og bjart tjald fyrir útskriftir, fermingar, brúðkaup, stórafmæli og fyrirtækjaviðburði. Gluggaspjöldin hleypa inn dagsljósi og tvær hurðir halda flæðinu góðu.

Galvanhúðuð stálgrind og vatnsheldur dúkur gefa gott skjól fyrir rigningu og vætu. Við getum reist tjaldið og tekið það niður fyrir þig ef þú bætir við uppsetningu.

Upplýsingar

Stærð5 × 8 m (40 m²)
Hæð2,8 m
RúmarUm 30 sitjandi við borð eða 45–60 standandi
Svæði sem þarfSlétt, minnst 6 × 9 m
LofthæðMinnst 3 m, án greina og þakrenna
DúkurVatnsheldur, hvítur
GrindGalvanhúðað stál
Hurðir2, auk gluggaspjalda

Tjaldið er ekki reist, eða er tekið niður, ef vindur fer yfir 10 m/s í meðalvindi eða 15 m/s í hviðum.

Mældu svæðið áður en þú bókar. Ef ekki er hægt að reisa tjaldið vegna pláss eða undirlags er leigan ekki endurgreidd.

Þrifgjald 14.990 kr. ef tjaldinu er skilað óhreinu.

Algengar spurningar

Hvað þarf mikið pláss?

Tjaldið þarf slétt svæði, minnst 6 × 9 m, og minnst 3 m lofthæð án greina, þakrenna eða lína. Mældu svæðið áður en þú bókar. Ef ekki er hægt að reisa tjaldið vegna pláss eða undirlags er leigan ekki endurgreidd.

Hvaða undirlag hentar?

Slétt og fast undirlag, til dæmis gras, pallur eða hellur. Ef þú ert óviss, sendu okkur mynd af svæðinu og við metum það með þér.

Hvað ef það verður hvasst?

Af öryggisástæðum er tjaldið ekki reist, eða það tekið niður, ef meðalvindur fer yfir 10 m/s eða hviður yfir 15 m/s. Ef spáin er tvísýn, hafðu samband og við förum yfir stöðuna saman.

Þarf ég að kaupa uppsetningu?

Nei, uppsetning er valkvæð aukaþjónusta. Ef þú vilt að við sjáum um það bætirðu við uppsetningu og niðurtekt fyrir 29.990 kr. Þá reisum við tjaldið fyrir veisluna og tökum það niður á eftir.

Get ég afbókað?

Já. Með 7 daga fyrirvara eða meira færðu fulla endurgreiðslu. Með 2–6 daga fyrirvara færðu 50% endurgreiðslu eða fulla inneign. Innan 48 klst. fyrir viðburð er ekki endurgreitt.

Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.

Umsagnir á Google

Það sem viðskiptavinir segja

4,9 af 5 · 31 umsögn Lesa allar umsagnir á Google
★★★★★
„Mættu og settu upp tjald, hitara og borð fyrir garðveislu. Allt uppá tíu - flott þjónusta á góðu verði!“
Ingimar Björn EydalGoogle-umsögn
★★★★★
„Leigði hitara og tjald með uppsetningu. Allt stóðst. Góð þjónusta. Myndi leigja aftur frá þeim“
Bjarni GuðmundssonGoogle-umsögn
★★★★★
„Mjög góð þjónusta. Ekkert vesen komu með hlutina og sóttu. Mjög ánægð og mæli með að panta hjá þeim“
Alda SvansdóttirGoogle-umsögn
Allur búnaðurinn
Borð og bekkir

Borð og bekkir

Eitt borð og tveir bekkir. Sæti fyrir 6–8 gesti.

9.990 kr. á dag
Útihitari

Útihitari

2000 W rafmagnshitari á fæti með þremur hitastillingum.

4.990 kr. á dag
Við tengjum hana
Bjórdæla

Bjórdæla

Kældur bjór beint úr kút. Innbyggð loftdæla, ekkert CO₂-hylki.

14.990 kr. á dag